Söluaðilar
Hafðu samband við fasteignasalana hér fyrir neðan til að panta skoðun, fá nánari upplýsingar eða til að gera tilboð.
Hlíðarendahverfi
102 Reykjavík
Dalhús kynnir 157 nýjar íbúðir á einstökum stað við rætur Öskjuhlíðar. Nýtt hverfi í hjarta borgarinnar þar sem staðsetning er með besta móti og stutt í alla þjónustu, miðbæ Reykjavíkur, háskóla, verslanir íþróttastarf og afþreyingu.
Hönnun
Húsið er hannað af KRark arkitektum sem leggur áherslu á að hagnýta samþættingu á milli byggingarlistar, tækni og náttúrulegs umhverfis. Eigendur Dalhúss ehf. hafa starfað á íslenskum byggingarmarkaði síðan 1991 og byggt mikinn fjölda íbúða með góðum árangri og endingu við íslenskar aðstæður.
Sýningaríbúð
Notið örvarnar eða punktana til að fletta á milli mynda.
Umhverfi
Fjölmargar fallegar gönguleiðir og afþreyingu er að finna umhverfis Hlíðarenda. Hvort sem þú vilt fara í fallega haustgöngu í Öskjuhlíðinni, baða þig í sólinni að sumarlagi í Nauthólsvíkinni eða ganga niður að tjörninni í Reykjavík til að gefa öndunum brauð, eru þetta aðeins fáein dæmi um það sem þú finnur í næsta nágrenni og í göngufæri frá íbúðunum í Hlíðarendahverfi.